Fixlanda er ungt fyritæki sem sérhæfir sig í kortagerð, ráðgjöf og þjónustu í tengslum við kort og landupplýsingakerfi.
Nafnið Fixlanda kemur fyrst fyrir á gömlum sjókortum Miðjarðahafsþjóða þar sem landið er kallað Fixlanda en breyttist síðan í Frislanda.
Allt er á huldu um uppruna þessarar nafngiftar en enginn vafi mun leika á að átt er við ísland. Á þessum kortum er lögun landsins mun nær lagi en á svokölluðum Clavusarkortum sem birtust í lok 14. aldar og á 15. öld. Útlínur suður- og vesturstrandarinnar eru nokkuð réttar og Reykjanes, Snæfellsnes og Vestfirðir eru til staðar þótt hlutföllin séu röng. Það er ekki ólíklegt að þessi mynd af landinu eigi rætur að rekja til upplýsinga enskra far og fiskimanna sem fóru að sigla til Íslands og á íslandsmið í upphafi 15. aldar, því sumir þeirra áttu jafnframt viðskipti við Miðjarðahafsþjóðir. Þessi íslandsgerð hvarf ekki endanlega af sjónarsviðinu fyrr en um 1600. Frönsk og portúgölsk sjókort frá 15.öld, sem kennd eru við Dieppe í Frakklandi, virðast byggð á þessari gerð er þar bregður þó svo við að landið ber sitt rétta nafn. Frislandanafnið skýtur reyndar aftur upp kollinum á svokolluðu Zeonkorti árið 1558 en þar er skipan landa í og við Norður-Atlandshafið mjög fjarri lagi. Margar fjarstæður sem lifðu á því korti lifðu fram á 17.öld.
Kortagerðamaður Fixlanda og eigandi þess Hans H. Hansen hefur hlotið mörg verðlaun og viðurkenningar fyrir kortagerð. Hér má sjá nokkur viðurkenningaskjöl . Einnig var Íslandsatlasinn valin fræðibók ársins af starfsfólki bókaverslana árið 2005.
Besta viðurkenningin eru þó ánægðir viðskiptavinir sem kaupa kortin okkar aftur og aftur.
Meðal viðskiptavina okkar eru:

Forlagið
kort og bækur til útgáfu;
Íslands Atlas 1:100.000
Kortabók Íslands 1:300.000
Ferðakort 1: 600.000
Fjórðungskort 1:300.000
Hálendiskort 1:300.000
Sérkort 1:100.000 - ofl. ofl. ofl.